05.08.05 - 11:26
Hafliði Breiðfjörð
Damien Francis til Wigan (Staðfest)

Wigan hafa gengið frá kaupum á Damien Francis leikmanni Norwich City og í kjölfarið gerði leikmaðurinn þriggja ára samning við félagið eftir að hafa komist klakklaust í gegnum læknisskoðun. Francis verður fimmtu kaup Wigan í sumar.
,,Wigan er félag sem hugsar fram á veginn og hefur mikinn metnað og það passar við mig sem persóonu. Samningurinn gerðist nokkuð snöggt og það er frábært að hafa samið við Wigan og vera kominn aftur í ensku úrvalsdeildina. Það var ekki auðvelt að yfirgefa Norwich."
,,Það var frábært að spila í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð með Norwich. Það er án alls vafa best ao erfiðasta deild í heimi. Jafnvel þó við höfum fallið á síðustu leiktíð naut ég reynslunnar og tel að ég sé betri leikmaður fyrir vikið."