Fotbolti.net
05.08.05 - 15:33

Luis Figo til Inter (Staðfest)

Figo verður númer sjö hjá Inter

Figo verður númer sjö hjá Inter

Canon
Portúgalski kantmaðurnn Luis Figo hefur skrifað undir tveggja ára samning við Inter Milan á Ítalíu. Figo kom til Milan í gærkvöldi og gekkst undir læknisskoðun í morgun þar sem allt gekk að óskum. Figo kemur í frjálsri sölu frá Real Madrid en hann var nálægt því að ganga til liðs við Liverpool nú fyrr í sumar.
Fréttir bárust af því fyrr í sumar að Figo hefði náð samkomulagi við Liverpool um að ganga til liðs við Evrópumeistarana en Real Madrid kröfðust þá að fá greiðslu fyrir leikmanninn. Liverpool töldu að þeir fengju hann frítt og á endanum varð ekkert úr vistaskiptunum.

"Ég er forvitinn að læra á Ítölsku deildina. Ég veit að ég get spilað í þessum styrkleika á næstu tveimur árum og ég get ekki beðið eftir því að byrja. Ég ætla að sjá hvort Inter leyfi mér ekki að spila smá fótbolta" sagði Figo við undirskriftina nú síðdegis.

Figo gekk til liðs við Real árið 2000 fyrir 37 milljónir punda frá erkifjéndum þeirra í Barcelona. Hann var fyrsti "galactivo" sek gekk til liðs við Madrídinga en svo fylgdu menn á borð við Zinedine Zidane, Ronaldo og David Beckham í kjölfarið. Figo hefur verið valinn leikmaður ársins í Evrópu sem go besti leikmaður heims en hann var mikilvægur hlekkur í liði Real sem varð Evrópumeistari árið 2002 og spænskur meistari árin 2000 og 2003.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.