Túfa: Öll vinna fór í að þétta varnarleikinn
Auglýsing

Túfa er ávallt líflegur á hliðarlínunni

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Túfa þjálfari KA mætti í viðtal eftir 0-0 jafntefli liðsins gegn Íslandsmeisturum FH á Akureyrarvelli fyrr í dag og var nokkuð sáttur með úrslitin.
„Ég er ánægður með stigið. Ég er ánægður með að við höldum hreinu eftir svona langan tíma. Öll vinna síðustu tvær vikur fór í að þétta varnarleikinn og ná aftur svona þéttleika sem við vorum þekktir fyrir. Það var bara fullkomið í dag. “
„Við vorum nálægt því að skora mark kannski líka en stál í stál hér í dag og mér fannst allan tímann þetta vera jafn leikur. Ekki mikið um opin marktækifæri og hvorugt liðið vildi taka sénsa. En ég vil vinna alla leiki heima, það er alveg hreint mál,” hafði Tufa að segja um leikinn.
Vedran Turkalj spilaði sinn fyrsta leik fyrir KA, en þessi hávaxni miðvörður gekk til liðs við liðið í júlí. Frammistaða hans, og varnarlínunnar allrar, var mjög góð en hann var valinn maður leiksins af KA mönnum. - „Mér fannst hann góður. Stabíll allan tímann en allt liðið, vörnin, var það í dag. Voru að vinna virkilega vel saman og ég er gríðarlega ánægður með það,”
„Neinei, það er ekkert verið að skemmta sér eftir 1 stig. Leikur á miðvikudaginn og við byrjum bara að undirbúa hann strax á morgun,” voru lokaorð Tufa en KA heimsækir Fjölni í Grafarvoginn á miðvikudaginn næstkomandi.
Þetta og örlítið fleira er hægt að sjá í myndbandinu hér að ofanverðu.