Fotbolti.net
22.07.26 - 09:56
Kári Snorrason

Ítalir teygja sig lengra til að sannfæra Guardiola

Ítalir reyna að sannfæra Pep.

Ítalir reyna að sannfæra Pep.

Canon

Mynd: EPA

Forseti ítalska fótboltasambandsins segir sambandið ætla að gera fjárhagslegar undantekningar til að sannfæra Pep Guardiola um að taka við liðinu.

Guardiola hefur átt í viðræðum um að taka við ítalska landsliðinu en hann lét af störfum sem stjóri Manchester City eftir liðið tímabil.
Ítalir reyna að sannfæra Guardiola
TENGT EFNI

Ítalir reyna að sannfæra Guardiola

„Það hafa verið gerðar undantekningar af augljósum ástæðum sem ég er ekki hér til að útskýra, en það er ekki víst að þetta mál gangi í gegn,“ sagði Giovanni Malago, forseti ítalska fótboltasambandsins, í samtali við Gazzetta dello Sport.

Ítalía varð Evrópumeistari 2021 en hefur ekki komist á síðustu þrjú heimsmeistaramót. Liðið situr í 15. sæti á heimslista FIFA.

Aðrir kostir sem eru orðaðir við stjórastól ítalska landsliðsins eru Roberto Mancini og Andrea Pirlo.

Mancini stýrði ítalska liðinu til sigurs á EM 2021.

Mancini stýrði ítalska liðinu til sigurs á EM 2021.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.