05.08.26 - 21:21
Gylfi Már Þórðarson
Halli: Það verða klárlega afleiðingar
Auglýsing

Haraldur Freyr Guðmundsson - þjálfari Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflvíkingar tóku á móti KA í fyrri leik kvöldsins í Bestu deild karla í knattspyrnu á HS Orku vellinum í Keflavík og fóru með öruggan 3-0 sigur. Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur kom í viðtal að leik loknum.
Lestu um leikinn: Keflavík 3 - 0 KA
"Þetta var frábær leikur hjá okkur og sérstaklega fyrri hálfleikurinn. Seinni hálfleikurinn var það líka, mér fannst við hafa talsverða yfirburði í dag. Það var ekkert að gerast þegar að Eiður Orri fær seinna gula spjaldið og þetta verður smá "scrappy". Ég veit ekki hvort það sé gult spjald eða ekki, Eiður segir ekki, ekki skil ég af hverju hann ætti að henda sér niður úti á kanti kominn framhjá manninum sínum og stendur strax upp. Mér fannst hallað á okkur í dómgæslunni í dag, við fáum gul spjöld strax í kjölfarið af þessu atviki og ég skil ekki línuna hjá honum í seinni hálfleik. Frammistaðan hjá okkur, sérstaklega eftir að við erum manni færri, vinnuframlagið og orkan sem við setjum í þetta er frábær og við hefðum getað bætt við tveimur, þremur mörkum í seinni hálfleik.
Við höldum áfram og fáum sjálfstraust með sigri en það er erfiður leikur gegn Stjörnunni á sunnudag svo nú er það bara smá endurheimt til að vera klár í þann leik.
Markmið Keflavíkur er fyrst og fremst að halda okkur í deildinni og við tökum einn leik fyrir í einu. Við erum í efri hlutanum núna og að sjálfsögðu viljum vera þar þegar að skiptingin kemur en við vitum að þetta er ekki búið og það er barátta framundan."
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net lentu Alpha Conteh og Muhamed Alghoul saman á æfingu í vikunni með þeim afleiðingum að hinn síðarnefndi nefbrotnaði. Hverjar eru afleiðingar þessa atviks?
"Alghoul er ekki leikfær í dag og það þarf að taka ákvörðun hvort að hann láti laga sig strax og vera frá í 3-4 vikur eða spila með grímu og fara í aðgerð eftir mót. Þetta er atvik sem er búið og við tókum á því innan klúbbsins. "
Alpha spilar í dag, eru engar afleiðingar fyrir hann?
"Það er tekið á því innan klúbbsins og það verða klárlega afleiðingar."
Félagaskiptaglugginn er enn opinn. Keflvíkingar hafa nú þegar keypt Alpha Conteh frá Stjörnunni og býst Haraldur við enn frekari styrkingu.
Allt viðtalið við Harald Frey má sjá í spilaranum hér að ofan