Fotbolti.net
05.09.17 - 22:12
Brynjar Ingi Erluson

Jói Berg: Datt á andlitið og heyrði svo að Gylfi hafi skorað

Auglýsing
Jóhann Berg í leiknum í kvöld.

Jóhann Berg í leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður íslenska landsliðsins, var sáttur með þrjá punkta gegn Úkraínu í kvöld. Hann var einn af lykilmönnum liðsins.
„Flott bara þrjú stig og það er það sem við vildum og ég er mjög ánægður með þetta. Fyrri hálfleikurinn var erfiður, þeir mikið með boltann og við aftarlega. Þeir sköpuðu sér nokkur færi en náðu ekki að nýta sér þau,\" sagði Jóhann Berg.

Fyrra markið var svolítið skrautlegt. Emil Hallfreðsson átti fyrirgjöf og Jóhann Berg tók á móti honum í teignum en virtist sparka í markvörð Úkraínu. Hann veit sjálfur ekki nákvæmlega hvað gerðist.

„Ég sá bara Emil þarna og vissi að hann væri að fara að senda hann og ég ákvað að mæta. Ég veit ekki alveg hvað gerðist, held ég hafi sparkað í boltann og gæjann líka, örugglega bæði. Svo datt ég beint á andlitið og heyrði að Gylfi hefði skorað, var ekki alveg viss hvernig þetta var.\"

„Annað markið drap svo eiginlega leikinn. Við ætluðum bara að vera þolinmóðir og sjálfstraust á boltann. Við vorum svolítið hægir í fyrri hálfleik fannst mér og í seinni hálfleik vorum við töluvert hraðari á boltann og áttum þetta fyllilega skilið.\"


„Ég datt bara á andlitið og fékk blóðnasir og ringlaður í smástund en það skiptir ekki miklu máli að fagna,\" sagði hann ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.