05.09.20 - 17:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Noregur: Ingibjörg og stöllur styrktu stöðu sína á toppnum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingibjörg Sigurðardóttir spilaði allan leikinn fyrir Vålerenga þegar liðið vann 2-0 sigur á Sandviken í norsku úrvalsdeildinni.
Ingibjörg er á sínu fyrsta tímabili í Noregi og hefur hún staðið sig mjög vel til þessa í sterku liði Vålerenga.
Vålerenga náði forystunni í dag eftir rúman hálftíma og bætti við öðru marki eftir rúman klukkutíma. Sandviken fann engin svör og lokatölur 2-0.
Vålerenga er á toppi norsku úrvalsdeildarinnar með 27 stig eftir 12 leiki. Liðið hefur aðeins tapað einum leik.