Jorge Vilda rekinn rúmum tveimur vikum eftir sigurinn á HM

Jorge Vilda.

Mynd: Getty Images

Jorge Vilda.

Mynd: Getty Images

Spænska knattspyrnusambandið hefur tekið ákvörðun um að reka þjálfarann Jorge Vilda úr starfi aðeins tveimur vikum eftir að hann stýrði kvennalandsliði Spánar til heimsmeistaratitils. Það er verið að hreinsa til hjá spænska sambandinu.
Allt þjálfarateymi Vilda sagði af sér til að mótmæla hegðun Luis Rubiales, forseta knattspyrnusambands Spánar, eftir úrslitaleik HM. Rubiales smellti rembingskossi á Jennifer Hermoso, leikmann landsliðsins, í fögnuðinum og hefur hann verið harðlega gagnrýndur fyrir það. Hann hefur hins vegar neitað að segja af sér.
Vilda ætlaði fyrst ekki að fordæma hegðun Rubiales - manninum sem réði hann - en gerði það svo á endanum. Hann hefur hins vegar núna fengið sparkið frá stjórn knattspyrnusambandsins og starfandi forseta, sem er ekki Rubiales..
Þrátt fyrir að hafa stýrt liðinu að gullinu á HM þá hefur Vilda verið afar umdeildur í starfi. Tæpt ár er síðan fimmtán leikmenn landsliðsins skrifuðu undir tölvupóst og kröfðust þess að Vilda yrði rekinn.
Leikmennirnir sögðu að þjálfaratíð Jorge Vilda hefði haft neikvæð áhrif á andlega heilsu sína og að þær myndu hætta að spila fyrir landsliðið nema hann yrði rekinn. Núna hefur hann verið látinn fara.