Fotbolti.net
05.09.26 - 18:22
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

„Ég kom þegar liðið var aðeins með tvö stig og á botninum, en við enduðum með 26 stig"

„Ég kom þegar liðið var aðeins með tvö stig og á botninum, en við enduðum með 26 stig"
Canon

Mynd: Völsungur

Lengjudeildin

Völsungur vann 2-0 sigur á Gróttu á útivelli. Fernando Arranz og Elvar Baldvinsson skoruðu mörk Völsungs í leiknum. Borja Martin, þjálfari Völsungs, ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Grótta 0 - 2 Völsungur

„Ef ég er hreinskilinn þá nálgaðist ég þennan leik eins og hvern annan leik. Við erum búnir að spila úrslitaleiki allt frá því að ég kom til Húsavíkur, þannig að þetta var bara enn einn úrslitaleikurinn. Ég kom þegar liðið var aðeins með tvö stig og á botninum, en við enduðum með 26 stig, sem er met hjá félaginu.“

Er erfitt að fara inn í leik þar sem annað lið þarf að tapa stigum?

„Nei, alls ekki. Þegar maður þarf að treysta á sjálfan sig þá er best að fókusa á sjálfan sig. Ég skildi símann eftir í búningsklefanum því ég vildi ekki vita neitt. Ég vildi bara vinna leikinn, slá metið og sjá hvað myndi svo gerast í kjölfarið.“

Hvað telur þú hafa skilað ykkur sigrinum í dag?

„Ég reyndi að finna svæði með þriggja manna samspili til þess að sitja skrið á leikinn, en ég tel að jafnvægið á miðjunni hafi skipt mestu máli."

Mun Borja Martin halda áfram sem þjálfari Völsungs næsta sumar, hvernig lítur framtíðin út?

„Ég vil vaxa í starfi. Mig langar að þróa ferilinn minn í skandinavísku deildunum. Mér líkar vel við Noreg, Svíþjóð, Danmörku og Ísland. En ég er opinn fyrir því að hlusta á öll lið.“

„Ég er að leitast eftir því að taka næsta skref í erfiðari deildum í Skandinavíu. Af virðingu við Völsung, sem hefur gefið mér allt, þarf ég að melta það sem við höfum afrekað og hvíla mig í nokkrar vikur áður en ég fer að hugsa um framtíðina.“

Ertu með skilaboð til stuðningsmanna Völsungs?

„Takk fyrir, takk fyrir af öllu hjarta. Fyrir þá hlýju sem þið hafið sýnt og fyrir þá auðmýkt og þann mannkost sem einkenna ykkur. Þið munuð alltaf eiga hér vin, hvert sem ég fer.“

„Ég kom þegar liðið var aðeins með tvö stig og á botninum, en við enduðum með 26 stig"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.