Fotbolti.net
05.10.26 - 11:52
Elvar Geir Magnússon

96% líkur á að Ísland komist aftur upp í B-deildina

Ísland er komið í góðan gír.

Ísland er komið í góðan gír.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Eftir sannfærandi sigur Íslands gegn Búlgaríu á laugardaginn eru 96% líkur á því að Ísland muni komast aftur upp í B-deild Þjóðadeildarinnar, samkvæmt útreikningum Football Rankings.

Efsta lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.

Á morgun mætast Eistland og Ísland í Tallinn. Eistland er með fimm stig í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Íslandi sem trónir á toppnum.

Ísland er mun sigurstranglegra liðið fyrir leik morgundagsins. Epicbet er með stuðulinn 1,61 á sigur Íslands en 5,56 á sigur Eistlands. Jafntefli er með stuðulinn 4,02.
Arnar býst við „slagsmálum“ gegn liði sem hefur öðlast sjálfstraust
TENGT EFNI

Arnar býst við „slagsmálum“ gegn liði sem hefur öðlast sjálfstraust


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.