Fotbolti.net
05.10.26 - 10:59
Elvar Geir Magnússon

Arnar býst við „slagsmálum“ gegn liði sem hefur öðlast sjálfstraust

Arnar Gunnlaugsson.

Arnar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Íslenska landsliðið er komið til Tallinn í Eistlandi þar sem liðið mun mæta heimamönnum í síðasta leik sínum í þessum glugga.

„Þetta er svo gullið tækifæri að fara til Eistlands og og koma okkur í frábæra stöðu fyrir nóvembergluggann með sigri þar. Eistar eru búnir að koma á óvart. Mér finnst þeir vera sterkari heldur en Aserbaísjan þó þeir séu á svipuðum slóðum á FIFA-listanum," sagði Arnar Gunnlaugsson á fréttamannafundi eftir 3-0 sigur Íslands gegn Búlgaríu á laugardaginn.

Arnar segir Eistland koma með sjálfstraust inn í leikinn. Eistland er með fimm stig í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Íslandi sem trónir á toppnum.
Þrír leikmenn koma inn í landsliðshópinn
TENGT EFNI

Þrír leikmenn koma inn í landsliðshópinn

Eitt af sterkustu vopnunum
„Mér finnst þeir hafa bætt sig verulega og hafa náð í góð úrslit. Þeir náðu stigi gegn okkur og sigri á Búlgaríu, í leikjum sem þeir bjuggust við sem erfiðum útileikjum. Þá eru þeir komnir með sjálfstraust og meðbyr. Það er örugglega eitt af sterkustu vopnum sem íþróttamaður getur fengið. Við búumst við slagsmálum."

Leikur Íslands og Eistlands verður á A. Le Coq Arena í Tallinn og þó leikvangurinn sé flottur þá segir Arnar að grasið sé ekki upp á það besta.

„Ég þekki þennan völl ágætlega, við Víkingar spiluðum þarna 2024. Stúkan er flott en grasið er smá erfitt þannig að það verður líkamleg barátta og barist um seinni boltann. Það er eitthvað sem við getum búið okkur undir," segir Arnar Gunnlaugsson.

Í dag mun Arnar sitja fyrir svörum á fréttamannafuni í Tallinn. Elíza Gígja Ómarsdóttir verður þar fyrir hönd Fótbolta.net og færir ykkur lesendum helstu tíðindi.
Mikael Egill verður í banni í leiknum.

Mikael Egill verður í banni í leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.