Fotbolti.net
05.10.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

Pickford ákærður fyrir gáleysislegan akstur

Pickford ákærður fyrir gáleysislegan akstur
Canon

Mynd: EPA

Jordan Pickford hefur verið ákærður fyrir gáleysislegan akstur eftir að hafa komist nálægt því að orsaka umferðarslys í Knutsford 14. apríl síðastliðinn.
Pickford: Ég vil alltaf vera númer eitt
TENGT EFNI

Pickford: Ég vil alltaf vera númer eitt

Pickford virti biðskyldumerki að vettugi og svínaði fyrir tvo bíla sem þurftu báðir að nauðhemla til að koma í veg fyrir árekstur.

Pickford, akandi í 200 þúsund punda Lamborghini bifreið sinni, brunaði í burtu eftir atvikið en hann tók ekki eftir því að lögreglubifreið hafði fylgst með atburðarásinni.

Pickford braut umferðarlög með hraðakstri en stöðvaði bifreið sína þegar hann tók eftir bláu ljósunum á lögreglubílnum sem veitti honum eftirför.

Pickford, 32 ára landsliðsmarkvörður Englands, hefur játað brot sitt og verður dómur kveðinn í desember.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.