05.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin í dag - Frakkland og Ítalía á heimavelli

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er nóg um að vera í Þjóðadeildinni í kvöld þegar tveir leikir eru á dagskrá í A-deild, fjórir í B-deild og tveir í C-deild.
Í A-deild eiga Frakkland og Ítalía heimaleiki við Belgíu og Tyrkland.
Frakkar eru með sjö stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar, einu stigi fyrir ofan nágranna sína frá Belgíu. Frakkar höfðu betur í fyrri leik þjóðanna í Belgíu.
Ítalir eiga fjögur stig og mæta stigalausum Tyrkjum í annað sinn eftir að hafa rúllað yfir þá á útivelli fyrir viku síðan.
Reynsluboltarnir Robert Lewandowski og Edin Dzeko gætu þá mæst þegar Bosnía og Pólland eigast við í B-deildinni á meðan Norður-Írland tekur á móti Khvicha Kvaratskhelia og félögum frá Georgíu.
Graham Potter og lærlingar hans í sterku landsliði Svíþjóðar heimsækja Rúmeníu á meðan stríðshrjáðir Úkraínumenn spila við Ungverjaland.
Kýpur og Svartfjallaland eiga að lokum heimaleiki í C-deildinni.
A-deild
18:45 Frakkland - Belgía
18:45 Ítalía - Tyrkland
B-deild
18:45 Bosnía - Pólland
18:45 Norður-Írland - Georgía
18:45 Rúmenía - Svíþjóð
18:45 Úkraína - Ungverjaland
C-deild
16:00 Kýpur - Lettland
18:45 Svartfjallaland - Armenia