Fotbolti.net
20.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Franko Lalic áfram í Þór

Franko Lalic áfram í Þór
Canon

Mynd: Þór

Franko Lalic er búinn að framlengja samning sinn við Þór og verður hjá félaginu næstu tvö árin í hlutverki spilandi markmannsþjálfara.
Franko hefur verið hjá Þór í tvö ár og staðið sig mjög vel sem markmannsþjálfari á þeim tíma, en aðeins spilað einn leik í Lengjubikarnum fyrir félagið.

Franko hefur áður verið aðalmarkvörður hjá Víkingi Ó., Þrótti R. og Dalvík/Reyni í íslenska boltanum en hann er fæddur árið 1991.

Samhliða starfi sínu sem leikmaður og markmannsþjálfari meistaraflokks hefur Franko séð um markmannsþjálfun í yngri flokkum og mun halda því áfram næstu tvö árin.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.