Fotbolti.net
20.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Valinn besti fótboltamaður Asíu annað árið í röð

Valinn besti fótboltamaður Asíu annað árið í röð
Canon

Mynd: EPA

Lee Kang-in, sóknarleikmaður Atlético Madrid og suður-kóreska landsliðsins, hefur verið valinn besti fótboltamaður Asíu annað árið í röð.
Auk þess að vera lykilmaður í landsliði Suður-Kóreu tókst Lee að sigra Meistaradeild Evrópu og frönsku deildina með PSG á síðustu leiktíð, eftir að hafa unnið þrennuna í fyrra, áður en hann var keyptur til Atlético Madrid síðasta sumar.

Atlético borgaði 35 milljónir evra til að ganga frá kaupunum á Lee, sem er kominn með tvö mörk og eina stoðsendingu í fimmtán leikjum undir stjórn Diego Simeone.

Lee endaði í fyrsta sæti eftir að hafa sigrast á samlanda sínum Hwang In-beom og Japananum Ayase Ueda í kosningunni.

Hwang hefur verið að gera flotta hluti með FC Porto á meðan Ueda var frábær með Feyenoord og var keyptur til Lille í sumar, þar sem hann er liðsfélagi Hákons Arnars Haraldssonar.

Hin ástralska Caitlin Foord var best í kvennaflokki.


Valinn besti fótboltamaður Asíu annað árið í röð
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.