Fotbolti.net
20.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Ræðir við Katar eftir sögulegan árangur með Marokkó

Ræðir við Katar eftir sögulegan árangur með Marokkó
Canon

Mynd: EPA

Walid Regragui er viðræðum um að taka við stjórn á landsliði Katar en það yrði hans fyrsta þjálfarastarf eftir að hafa náð sögulegum árangri með landslið Marokkó.
Hann stýrði Marokkó til fjórða sætis á heimsmeistaramótinu og vann Afríkukeppnina eftir umdeilda ákvörðun í kjölfar úrslitaleiksins dramatíska gegn Senegal, en sagði svo af sér í mars.

Katar hefur verið með furðu mikið af landsliðsþjálfurum á síðustu árum eftir að hafa leikið undir leiðsögn Félix Sánchez í fimm og hálft ár.

Á síðustu fjórum árum hafa Hugo Pinheiro, Carlos Queiroz, Tintín Márquez og Luis García þjálfað landsliðið.

Julen Lopetegui er núverandi landsliðsþjálfari en vill leita sér að nýju starfi í kjölfar seinkunar á Asíumótinu vegna stríðsástands í álfunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.