Fotbolti.net
19.11.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Hutchinson dreymir um að vera keyptur til Milan

Hutchinson dreymir um að vera keyptur til Milan
Canon

Mynd: EPA

Omari Hutchinson er að njóta lífsins í Mílanó og er kominn með eitt mark og eina stoðsendingu í tólf leikjum undir stjórn Rúben Amorim.
Hutchinson er ekki með byrjunarliðssæti en vonast til að vera keyptur til Milan þar sem hann leikur á lánssamningi frá Nottingham Forest sem stendur. Milan borgaði um 4 milljónir evra fyrir lánssamninginn og getur fest kaup á kantmanninum fyrir 40 milljónir til viðbótar, sem gæti reynst of dýrt.

„Markmiðið er að berjast um titilinn strax á þessu tímabili og ég elska að vera hérna. Mig dreymir um að vera keyptur til félagsins, ég get séð sjálfan mig spila hérna næstu árin. Við erum með frábæran leikmannahóp þó það vanti kannski fleiri leiðtoga á ákveðnum tímapunktum," segir Hutchinson.

„Þjálfarateymið hérna er frábært og ég er viss um að við munum gera stórkostlega hluti sem lið um leið og allt smellur."

Milan er í fjórða sæti ítölsku deildarinnar sem stendur, með 24 stig eftir 11 umferðir - fimm stigum á eftir toppliði Lazio eftir að hafa sigrað Ítalíumeistara Inter í nágrannaslagnum í lok október.

Hutchinson er afar fjölhæfur kantmaður sem segist vera tilbúinn í hvaða hlutverk sem þjálfarinn krefst af honum.

„Ég geri hvað sem þjálfarinn segir mér að gera, ég reyni að fylgja fyrirmælunum eftir bestu getu og laga leikinn minn að hverju hlutverki. Hann veit hvað ég get gert með boltann og það sem hann segir við mig er einfaldlega að gera mitt besta í að skapa færi og að leggja allt í sölurnar. Mér líður eins og hann treysti mér en ég þarf að gera meira til þess að vinna mér inn sæti í byrjunarliðinu."
Hutchinson dreymir um að vera keyptur til Milan
Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.