Fotbolti.net
20.11.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England um helgina - Pochettino byrjar á Anfield

England um helgina - Pochettino byrjar á Anfield
Canon

Mynd: EPA

Ellefta umferð enska úrvalsdeildartímabilsins fer fram um helgina og hefst veislan í hádeginu á morgun þegar Manchester City tekur á móti Fulham.
Man City er óvænt búið að tapa þremur deildarleikjum í röð og er sex stigum á eftir Englandsmeisturum Arsenal í toppbaráttunni.

Aston Villa, Bournemouth, Chelsea og Tottenham eru meðal liða sem eiga heimaleiki á morgun áður en Newcastle United tekur á móti Arsenal í lokaleik dagsins.

Brighton hefur verið spútnik liðið á byrjun tímabils og situr í öðru sæti, fimm stigum á eftir Arsenal. Lærlingar Fabian Hürzeler heimsækja nýliða Hull City á sunnudaginn áður en stórleikur helgarinnar fer fram á Anfield.

Liverpool spilar þar við Manchester United sem leikur sinn fyrsta leik undir stjórn Mauricio Pochettino.

Að lokum verður Hákon Rafn Valdimarsson líklegast á sínum stað á varamannabekk Brentford þegar liðið tekur á móti Everton á mánudagskvöldið.

Laugardagur
12:30 Man City - Fulham
15:00 Aston Villa - Sunderland
15:00 Bournemouth - Nott. Forest
15:00 Chelsea - Leeds
15:00 Coventry - Crystal Palace
15:00 Tottenham - Ipswich Town
17:30 Newcastle - Arsenal

Sunnudagur
14:00 Hull City - Brighton
16:30 Liverpool - Man Utd

Mánudagur
20:00 Brentford - Everton

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.