05.11.07 - 06:00
Andri Fannar Stefánsson
Ingvi Hrafn Ingvason í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Örlygur Þór þjálfari skrifar undir

Ingvi Hrafn ásamt Stefáni Garðari við undirskriftina á laugardaginn.

Mynd: Dalvík/Reynir

Ingvi Hrafn ásamt Stefáni Garðari við undirskriftina á laugardaginn.

Mynd: Dalvík/Reynir
Á laugardag gekk sóknarmaðurinn Ingvi Hrafn Ingvason til liðs við Dalvík/Reyni frá KA en hann hefur leikið síðastliðin tvö sumur með KA.
Í sumar gekk honum illa að festa sig í sessi í KA liðinu og kom hann aðeins við sögu í þrettán leikjum. Í fyrrasumar lék hann sjö leiki með liðinu. Hann hefur aftur á móti leikið 57 leiki og skorað fimm mörk með Dalvík og svo Leiftri/Dalvík á árunum 2001-2005.
Einnig skrifaði Örlygur Þór Helgason, þjálfari, undir samning við liðið en eins og við höfum greint frá áður þá var hann búinn að samþykkja að taka við stjórn liðsins fyrr í haust.
Dalvík/Reynir ætla sér greinilega stóra hluti næsta sumar en Örlygur Þór sagði að þeir ætluðu sér að styrkja liðið enn frekar fyrir sumarið.
Liðið hafnaði í fjórða sæti D-riðils þriðju deildarinnar í sumar með nítján stig, einu stigi á eftir Hömrunum.
Sjá einnig:
Örlygur Þór ráðinn þjálfari Dalvíkur/Reynis

Stjórnarmenn og leikmannahópur Dalvíkur/Reynis á laugardaginn.

Örlygur Þór og Stefán Garðar við undirskrift samningsins.