05.11.07 - 22:20
Magnús Már Einarsson
Guðjón Baldvinsson fer í KR (Staðfest)

Guðjón með boltann í U21 árs landsleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón með boltann í U21 árs landsleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn Guðjón Baldvinsson mun í vikunni skrifa undir fimm ára samning við KR en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í kvöld. Guðjón kemur frá Stjörnunni en félögin hafa komist að samkomulagi um félagaskiptin og hefur þessi knái framherji hafið æfingar með KR.
,,KR er með besta mannskapinn á landinu, góðan þjálfara, bestu stuðningsmennina, góða aðstöðu og það var allt í Vesturbænum sem heillaði mig. Það er mikil tilhlökkun fyrir því að fara í úrvalsdeildina, ég hef beðið eftir þessu lengi," sagði Guðjón við Fótbolta.net í kvöld.
Guðjón mun gera langan samning við KR eða til fimm ára eins og fyrr segir.
,,KR er liðið sem mig langar að spila með á Íslandi og því sá ég enga ástæðu fyrir því að skrifa ekki undir til fimm ára," sagði Guðjón sem segir það undir sér komið að sýna sig og sanna hjá liðinu.
,,Það er náttúrulega þvílík samkeppni hjá liðinu og það er undir mér komið hvort ég fái að spili."
Guðjón sem er U21 árs landsliðsmaður var efnilegasti leikmaðurinn í fyrstu deild í fyrra og í annarri deild árið 2005 þar sem hann var einnig markahæsti leikmaðurinn.
Í sumar varð Guðjón þriðji markahæsti leikmaðurinn í fyrstu deild en hann skoraði tólf mörk í sextán leikjum og þá var hann tvívegis valinn leikmaður umferðarinnar hér á Fótbolta.net í sumar.