05.11.26 - 15:28
Kári Snorrason
Hefðu gert sterkara tilkall væri U21 ekki í umspili

Daníel Tristan fór á kostum með U21 í síðasta verkefni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hrósaði U21 landsliðinu á blaðamannafundi í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Enginn þeirra leikmanna sem tóku þátt í síðasta verkefni U21 landsliðsins var í A-landsliðshópi Arnars Gunnlaugssonar sem kynntur var í gær.
Íslenska A-landsliðið mætir Búlgaríu og Lúxemborg í komandi landsleikjaglugga. Á sama tíma leikur U21 landsliðið við Grikkland í umspili um sæti á EM næsta sumar.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður að því á blaðamannafundi í gær hvort einhverjir leikmenn U21 landsliðsins hefðu fengið kallið í A-landsliðið ef ekki hefði verið fyrir leikina mikilvægu gegn Grikklandi.

TENGT EFNI
Hefðu þeir átt að fá tækifærið hjá Arnari?
„Það eru klárlega tveir, þrír, jafnvel fjórir strákar sem gera tilkall til þess að vera í hópnum. Þeir hefðu gert enn sterkara tilkall ef þeir væru ekki að spila með U21 landsliðinu.
Ég er mjög ánægður með samstarfið og hvernig við höfum staðið að því að færa leikmenn á milli A-landsliðsins og U21 landsliðsins. U21 liðið hefur verið að gera virkilega góða hluti og vonandi halda þeir því áfram,“ sagði Arnar á blaðamannafundi í gær.
Leikmenn U21 landsliðsins sem hafa verið nefndir sem mögulegir kostir í A-landsliðið eru þeir Daníel Tristan Guðjohnsen, Viktor Bjarki Daðason og Amin Cosic.
Fyrirliði U21 liðsins, Eggert Aron Guðmundsson, hefur áður verið viðloðandi A-landsliðshópinn en hann er meiddur. Baka til eru þeir Júlíus Mar Júlíusson og Davíð Helgi Aronsson spennandi kostir.