Fotbolti.net
05.11.26 - 16:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sævar Atli áfram í Mosó (Staðfest)

Sævar Atli áfram í Mosó (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar Atli Hugason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Aftureldingu sem gildir út árið 2028. Fyrri samningur hans við félagið var að renna út.

Sævar er 21 árs miðjumaður sem er uppalinn hjá Aftureldingu og hefur leikið með liðinu allan sinn feril.

Í sumar skoraði Sævar eitt mark í þrettán leikjum þegar Afturelding vann Lengjudeildina. Hann spilaði ekki framan af tímabili en byrjaði að spila í júní.
Þá spilaði Sævar þrjá leiki í Mjólkurbikarnum og þar á meðal úrslitaleikinn gegn Breiðabliki. Samtals hefur Sævar skorað sex mörk í 76 leikjum með Aftureldingu í deild og bikar síðan hann lék sinn fyrsta leik árið 2022. 19 af leikjunum spilaði hann í Bestu deildinni 2025.

„Afturelding fagnar því að Sævar hafi framlengt samning sinn og spennandi verður að sjá hann taka áframhaldandi framförum í Mosfellsbæ!" segir í tilkynningu félagsins.

Sævar Atli áfram í Mosó (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.