Fotbolti.net
05.11.26 - 16:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Leikmaður Stjörnunnar valinn í landslið Síerra Leóne

Leikmaður Stjörnunnar valinn í landslið Síerra Leóne
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ibrahim Turay, leikmaður Stjörnunnar, hefur verið valinn í landslið Síerra Leóne.

Síerra Leóne á fyrir höndum leiki gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í forkeppni Afríkukeppninnar.

Síerrea Léone er án stiga eftir fyrstu tvo leikina í undankeppninni. Liðið tapaði gegn Simbabve og Miðbaugs Gíneu í síðasta landsleikjaglugga.
Samdi í fyrra og er núna byrjaður að skora fyrir Stjörnuna - „Mjög sérstakt ferli"
TENGT EFNI

Samdi í fyrra og er núna byrjaður að skora fyrir Stjörnuna - „Mjög sérstakt ferli"

Turay er 26 ára miðjumaður sem á að baki níu A-landsleiki og hefur í þeim skorað eitt mark. Síðast spilaði hann með liðinu í mars á síðasta ári.

Hann kom við sögu í 13 leikjum í Bestu deildinni í sumar en hann missti úr hluta af tímabilinu vegna ristarbrots.

Leikmaður Stjörnunnar valinn í landslið Síerra Leóne
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.