05.11.26 - 17:38
Elvar Geir Magnússon
Jaissle blæs á sögur um að leikmenn skilji ekki flókin fyrirmæli sín

Matthias Jaissle, stjóri Newcastle.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Matthias Jaissle, stjóri Newcastle.

Mynd: EPA
Newcastle er í þrettánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar en ósáttir stuðningsmenn liðsins bauluðu eftir tap 0-1 gegn Everton á mánudaginn.
Enska götublaðið Daily Mail birti frétt þess efnis í vikunni að leikmenn væru ringlaðir og ættu erfitt með að skilja flókin fyrirmæli og leikplan þýska stjórans Matthias Jaissle.
Newcastle mætir Fulham í ensku úrvalsdeildinni á laugardag og segir Jaissle að allir í leikmannahópnum séu samstíga og blæs á sögusagnir um að menn eigi erfitt með að skilja planið sitt.

TENGT EFNI
Leikmenn Newcastle fóru ekki eftir fyrirmælum
„Það er mikil samheldni í hópnum og það er jákvætt. Það er nauðsynlegur hluti af þeirri vegferð sem við erum á. Leikmenn eru alveg með á hreinu hvernig leikplanið er hjá mér og við hlustum hver á annan," segir Jaissle.
„Ég legg áherslu á að hlusta á leikmennina, svo ef eitthvað er óljóst þá ræða þeir við mig. Það er eins í lífinu og í fótbolta, maður vill gera sitt besta en stundum tekst það ekki eins og var raunin gegn Everton. Við sýndum ekki margt af því sem við vildum gera.“
Jaissle segir að leikmenn fylgi sinni hugmyndafræði.
„Það hefur aldrei verið vafi, allavega ekki í mínum huga. Við erum með góðan hóp og gott samband. Dyrnar eru alltaf opnar og ef eitthvað er óljóst er það rætt."