lau 05. desember 2020 10:00
Aksentije Milisic
Neymar mun einungis skrifa undir hjá PSG ef Messi kemur
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Neymar mun skrifa undir nýjan samning við frönsku meistaranna, en einungis ef félagið kaupir Lionel Messi frá Barcelona. Þetta segja franskir fjölmiðlar.

Neymar hefur reglulega verið orðaður burt frá PSG en hann sagði eftir leik Manchester United og PSG í vikunni að hann muni spila aftur með Messi á næsta tímabili.

Messi var nálægt því að yfirgefa Barcelona eftir síðasta tímabil en allt kom fyrir ekki og tekur hann hið minnsta eitt tímabil í viðbót hjá félaginu.

Framtíð Neymar hjá PSG mun því ráðast á því hvort félaginu takist að fá Messi til liðsins. Núverandi samningur Neymar hjá PSG rennur út árið 2022.

Neymar og Messi unnu La Liga í tvígang, spænska ofurbikarinn þrisvar, Meistaradeild Evrópu einu sinni og Heimsmeistarakeppni félagsliða einu sinni á fjórum árum sínum saman hjá Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner
banner