06.01.06 - 16:09
Magnús Már Einarsson
Benjani til Portsmouth (Staðfest)

Benjani Mwaruwari með Portsmouth treyju ásamt Alexandre Gaydamak (til vinstri) nýjum eiganda liðsins og Milan Mandaric sem á hinn helminginn í liðinu.

Mynd: Getty Images

Portsmouth kynnti framherjann Benjani Mwaruwari sem nýjasta leikmann sinn á blaðamannafundi í dag en á sama fundi var tilkynnt að auðkýfingurinn Alexandre Gaydamak hefði keypt helmingshlut í liðinu.
Benjani sem er frá Zimbabwe kemur frá Auxerre á 4,1 milljón punda en hann á reyndar ennþá eftir að fá atvinnuleyfi. Marseille vildi einnig fá kappan en hann ákvað frekar að ganga til liðs við Portsmouth.
,,Ég er mjög ánægður með að ganga til liðs við Portsmouth. Ég hef verið aðdáandi enska boltans. Ég átti möguleika á að fara til Marseille en ég valdi frekar að koma hingað þar sem ég tala ensku aðeins betur en frönsku. Ég er hér til að skora nokkur mörk," sagði Benjani þar sem hann var kynntur fyrir fjölmiðlamönnum.