Fotbolti.net
06.01.07 - 08:35
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Wigan lána Andy Webster til Rangers (Staðfest)

Webster (til hægri) í leik með Hearts á sínum tíma

Webster (til hægri) í leik með Hearts á sínum tíma

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Andy Webster hefur gengið til liðs við skoska félagið Glasgow Rangers á lánssamningi út tímabilið frá Wigan. Hann kom einmitt til Wigan frá öðru skosku félagi, Hearts, í sumar.
,,Ég er ánægður með að snúa aftur til Skotlands með Rangers. Ég hef augljóslega spilað gegn þeim mörgum sinnum með Hearts og ég get ekki beðið eftir að klæðast búningi þeirra reglulega fyrir framan 50 þúsund áhorfendur," sagði þessi 24 ára gamli leikmaður.

,,Ég hef samþykkt að fara til þeirra á láni til loka tímabilsins og vonandi get ég framlengt dvöl mína lengur en það," sagði Webster svo að lokum en fyrsti leikur hans fyrir félagið verður líklega á næsta laugardag gegn Dundee United á Ibrox.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.