06.01.08 - 15:18
Magnús Már Einarsson
Jan Köller til Nurnberg (Staðfest)

Köller í leik með Dortmund fyrir nokkrum árum.

Mynd: Getty Images

Jan Köller, framherjinn stóri og stæðilegi, hefur gert tveggja og hálfs árs samning við þýska félagið Nurnberg.
Nurnberg staðfesti þetta í dag en félagið kaupir Köller af Monaco og er talið að kaupverðið sé um það bil ein milljón evra.
Köller sem er 34 ára hefur verið hjá Monaco í eitt og hálft ár og skorað þar tólf mörk í 50 leikjum. Áður lék hann með Dortmund í Þýskalandi í nokkur ár og skoraði þar 59 mörk í 138 leikjum.
,,Markmið mitt er að tryggja það að Nurnberg verði áfram í efstu deild. Ég hef séð leiki með Nurnberg í sjónvarpinu og þeir eru ekki með slakt lið," sagði Köller en Nurnberg er sem stendur í þriðja neðsta sæti í Bundesligunni.

Heimild: AFP