Fotbolti.net
06.02.06 - 17:11
Hafliði Breiðfjörð

Fram kærir Val ekki

Þorvaldur Makan í búningi Vals

Þorvaldur Makan í búningi Vals

Canon

Mynd: Valur

Framarar hafa ákveðið að leggja ekki fram kæru á hendur Val fyrir að ræða ólöglega við, og semja við, Þorvald Makan Sigurbjörnsson sem er samningsbundinn Fram út næsta ár. Þetta staðfesti Brynjar Jóhannsson framkvæmdastjóri Fram við Fótbolta.net í dag.
Eins og við greindum frá fyrir helgi gekk Þorvaldur Makan óvænt í raðir Vals á föstudag eftir að hafa hætt í fótbolta sumarið 2004 vegna höfuðmeiðsla. Síðar um daginn sagði Brynjar Jóhannesson framkvæmdastjóri Fram í samtali við Fótbolta.net að hann væri mjög ósáttur við þessar fréttir enda Þorvaldur samningbundinn Fram og hann íhugaði að kæra Val.

En í samtali við Fótbolta.net í dag sagði Brynjar að tekin hafi verið ákvörðun um að kæra ekki. ,,Við höfum rætt málið við Makan og í ljósi þeirra samskipta sem við höfum átt við Makan síðan hann kom til okkar þá munum við ekki aðhafast meira í þessu máli. Það er eingöngu gert af því að Makan er drengur góður og góður félagi okkar."

Sjá einnig:
Framarar íhuga að kæra Val vegna Þorvaldar
Þorvaldur Makan í viðtali við Fótbolta.net
Þorvaldur Makan í Val (Staðfest)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.