Englendingurinn Harley Willard hefur samið um að spila með nýliðum Ægis í Lengjudeildinni í sumar en félagið greinir frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.
Wallard er 28 ára gamall framherji sem fór í gegnum akademíu Arsenal og Southampton sem á einnig unglingalandsleiki með Skotlandi, þar sem móðir hans er ættuð.
Hann kom til Íslands árið 2019 og spilaði með Víkingi Ólafsvík þrjú sumur og var meðal annars valinn í lið ársins í Lengjudeildinni, en hann spilaði 68 leiki í deild- og bikar og skoraði 36 mörk.
Árið 2022 samdi hann við Þór þar sem hann skoraði 15 mörk í 24 leikjum. Þaðan fór hann til KA þar sem hann lék tvö tímabil í Bestu deildinni og skoraði fimm mörk.
Willard lék með Selfyssingum á síðasta ári og gerði eitt mark, en hann er nú kominn í Ægi og mun taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni.
Ægir tók efsta sætið í 2. deild á síðasta ári með 44 stig, jafnmörg og Grótta, en markatala færði Ægismönnum titilinn.
Athugasemdir



