Það fóru fjórir leikir fram í Lengjubikarnum í kvöld þar sem FH rúllaði yfir Þrótt R. með sjö mörkum gegn engu.
Bæði lið mættu með sterk byrjunarlið til leiks en FH-ingar voru óstöðvandi og leiddu með fjórum mörkum í leikhlé. Adolf Daði Birgisson skoraði fyrsta markið áður en Gils Gíslason gerði sér lítið fyrir og setti þrennu.
Kári Kristjánsson, Benjamín Bæring Þórsson og Arnór Borg Guðjohnsen komust allir á blað í síðari hálfleik, áður en einn FH-ingur fékk að líta rauða spjaldið í uppbótartíma.
Fylkir vann þá gegn Breiðabliki sem tefldi þó aðeins fram strákum úr yngri flokkum sem eru fæddir á árunum 2007 til 2010.
Theodór Ingi Óskarsson skoraði fyrsta mark leiksins áður en Guðmundur Tyrfingsson tvöfaldaði forystuna. Staðan var 2-0 í leikhlé og hélst þannig allt þar til í uppbótartíma þegar Gummi Tyrfings innsiglaði 3-0 sigur með sínu öðru marki.
Keflavík og HK skildu þá jöfn eftir að gestirnir frá Kópavogi náðu tveggja marka forystu. Arnþór Ari Atlason skoraði eina markið í fyrri hálfleik og tvöfaldaði Dominik Radic forystuna eftir leikhlé.
Keflvíkingar gáfust ekki upp og náðu að jafna leikinn með tveimur mörkum á sex mínútna kafla, þar sem Marin Mudrazija minnkaði muninn áður en Eiður Orri Ragnarsson gerði jöfnunarmarkið. Lokatölur 2-2 en þessi lið áttust einmitt við í úrslitaleik umspilsins um sæti í efstu deild í fyrra, þar sem Keflavík hafði betur.
Að lokum hafði Afturelding betur gegn Gróttu þar sem staðan var markalaus framan af en Óðinn Bjarkason setti tvennu á lokakaflanum til að tryggja heimamönnum sigur.
Gestirnir frá Seltjarnarnesi léku lokakaflann manni færri eftir rautt spjald, en Mosfellingar fengu svo eitt rautt spjald í uppbótartíma.
Þróttur R. 0 - 7 FH
0-1 Adolf Daði Birgisson ('13)
0-2 Gils Gíslason ('28)
0-3 Gils Gíslason ('33)
0-4 Gils Gíslason ('45+1)
0-5 Kári Kristjánsson ('54)
0-6 Benjamín Bæring Þórsson ('84)
0-7 Arnór Borg Guðjohnsen ('86)
Rautt spjald: FH ('91)
Fylkir 3 - 0 Breiðablik
1-0 Theodór Ingi Óskarsson ('20)
2-0 Guðmundur Tyrfingsson ('38)
3-0 Guðmundur Tyrfingsson ('92)
Keflavík 2 - 2 HK
0-1 Arnþór Ari Atlason ('29)
0-2 Dominik Radic ('59)
1-2 Marin Mudrazija ('76)
2-2 Eiður Orri Ragnarsson ('82)
Afturelding 2 - 0 Grótta
1-0 Óðinn Bjarkason ('81)
2-0 Óðinn Bjarkason ('90)
Rautt spjald: Grótta ('69)
Rautt spjald: Afturelding ('92)
Athugasemdir




