Fotbolti.net
06.03.26 - 18:45
Ívan Guðjón Baldursson

Iniesta í viðræðum við marokkóska landsliðið

Iniesta í viðræðum við marokkóska landsliðið
Canon

Mynd: EPA

Spænska fótboltagoðsögnin Andrés Iniesta er í viðræðum um að taka við mikilvægu starfi hjá marokkóska landsliðinu.
Iniesta hefur verið í viðræðum við marokkóska fótboltasambandið síðustu daga en samningsmál eru ekki frágengin.

Spænskir fjölmiðlar hafa fjallað um málið og sögðu síðustu daga að samkomulag væri í höfn, en svo virðist ekki vera. Viðræður eru enn í gangi.

Iniesta myndi taka við sem tæknilegur stjórnandi landsliðsins. Þar myndi hann starfa samhliða nýráðnum aðalþjálfara Mohamed Ouahbi og aðstoðarþjálfaranum João Sacramento, sem starfaði áður sem aðstoðarþjálfari hjá PSG og AS Roma.

Iniesta er goðsögn í fótboltaheiminum eftir að hafa náð mögnuðum árangri sem leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins á sínum ferli.

Iniesta er 41 árs gamall og er að vinna í að öðlast þjálfaragráðu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.