Fotbolti.net
06.04.06 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Hreiðarsson í Þrótt (Staðfest)

Jóhann Hreiðarsson.

Jóhann Hreiðarsson.

Canon

Mynd: Valur.is

Miðvallarleikmaðurinn Jóhann Hilmar Hreiðarsson er genginn í raðir Þróttara og gerði við þá þriggja ára samning í gær. Jóhann kemur frá Valsmönnum en bróðir hans, Sigurbjörn Hreiðarsson er fyrirliði Vals.
Jóhann lék á síðustu leiktíð með Víkingum í 1. deildinni sem lánsmaður frá Val en hann hefur verið við nám í Bandaríkjunum og lauk því ekki tímabilinu þar.

Hann er marksækinn miðjumaður sem hefur leikið 18 leiki í efstu deild með Valsmönnum og skorað í þeim 8 mörk. Öll þessi mörk skoraði hann tímabilið 2003 og var hann með markahæstu mönnum í efstu deild það árið.

Jóhann hefur einnig leikið 2 U19 ára og 8 U17 ára landsleiki fyrir Íslands hönd.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.