Fotbolti.net
06.04.06 - 13:08
Magnús Már Einarsson

El Karkouri til Katar (Staðfest)

El Karkouri til Katar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alan Curbishley stjóri Charlton hefur leyft varnarmanninnum Talal El Karkouri að fara til Al Gharafa í Katar á láni út þessa leiktíð.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur aðeins leikið tólf leiki fyrir Charlton á þessari leiktíð og alls 48 leiki á eins og hálfs árs dvöl sinni hjá félaginu en hann vonast til að verða seldur til Gharafa í sumar.

,,Talal vildi fara því hann hefur fengið fá tækifæri hér. Hann hefur ekki spilað of marga leiki eftir meiðsli fyrr á tímabilinu og ég var ánægður að geta gefið honu þetta tækifæri," sagði Curbishley.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.