Fotbolti.net
06.04.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Garnacho til sölu

Garnacho til sölu
Canon

Mynd: EPA

Alejandro Garnacho gekk til liðs við Chelsea frá Man Utd síðasta sumar. Nú tæplega ári síðar vill Chelsea losa sig við hann.

Hann gekk til liðs við félagið á 40 milljónir punda en samkvæmt heimildum breska fjölmiðlamannsins Simon Phillips telur Chelsea góðar líkur á því að nokkur félög séu tilbúin að borga svipað verð.
Garnacho var seldur frá Man Utd eftir að hafa lent upp á kant við Ruben Amorim, þáverandi stjóra United. Hann hefur hins vegar ekki náð að sanna sig hjá Chelsea.

Hann hefur komið við sögu í 37 leikjum í öllum keppnum, skorað átta mark og lagt upp fjögur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.