Fotbolti.net
06.04.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Martinelli hrinti dómaranum - „Algjör vanvirðing"

Martinelli hrinti dómaranum - „Algjör vanvirðing"
Canon

Mynd: EPA

Gabriel Martinelli, leikmaður Arsenal, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að hrinda Sam Barrott dómara sem dæmdi leik Arsenal og Southampton í enska bikarnum um helgina.

Arsenal tapaði leiknum 2-1 en Shea Charles skoraði sigurmarkið þegar fimm mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.
Arsenal fékk aukaspyrnu seint í uppbótatímanum og Martinelli var að flýta sér að taka hana. Barrott stóð við boltann og Martinelli ýtti í hann og fékk gult spjald að launum.

Mark Halsey, fyrrum dómari í úrvalsdeildinni, telur að Martinelli hafi átt að fá rautt spjald.

„Hann dæmir aukaspyrnu, Martinelli kemur á fullu og ýtir Sam í burtu. Afsakið mig en Martinelli sýndi dómaranum algjöra vanvirðingu. Hann gaf honum gult spjald en fyrir mér er þetta rautt spjald. Þú mátt ekki setja hendur á dómarann, hvað þá ýta honum."


Gabriel Martinelli shoves referee Sam Barrott and gets carded
by
u/OptimusCloyster in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.