Fotbolti.net
06.05.05 - 16:58
Magnús Már Einarsson

McFarlane búinn að semja við Blika (Staðfest)

Bjarni Jóhannsson þjálfari Blika.

Bjarni Jóhannsson þjálfari Blika.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Errol Edderson McFarlane hefur gert samning við 1.deildarlið Breiðablik um að leika með liðinu í sumar. McFarlane sem er 27 ára kemur frá Trinidad og Tobago en hann hefur verið til reynslu hjá Blikum að undanförnu og lék meðal annars æfingaleik með liðinu gegn Grindavík í gær.
McFarlane er ekki ókunnugur íslenskum fótbolta því hann lék 9 leiki með Fylki í efstu deild árið 2001 en þá var Bjarni Jóhannsson núverandi þjálfari Blika við stjórnvölinn hjá Fylki.

McFarlane ku hafa spilað í Líbanon síðastliðin ár en hann lék nokkra leiki með landsliði Trinidad og Tobago síðastliðið haust og skoraði nokkur mörk er hann lék með Stern John leikmanni Coventry í fremstu víglínu. Reyndar hefur McFarlane misst sæti sitt í landsliði Trinidad og Tobago núna en hann hefur víst verið án liðs að undanförnu eftir dvölina í Líbanon

Aðspurður hvort McFarlane væri í betra formi í dag heldur en þegar að hann var hjá Fylki sagði Bjarni Jóhannsson við Fótbolti.net í dag ,,Það er allt annað, þegar að hann var að spila með mér hjá Fylki spilaði hann bara seinni hluta sumars (Innskot: Erfiðlega gekk að fá leikheimild fyrir McFarlane hjá Fylki). Hann lítur ágætlega út kallinn en hann þarf að koma sér í örlítið betra form eins og allír útlendingar á þessum tíma."

Aðspurður sagði Bjarni Breiðablik ekki ætla að styrkja sig meira en allir væru velkomnir ef þeir geta eitthvað í fótbolta. Bjarni bætti við að Blikar ætluðu að reyna að komast upp um deild í sumar enda hefur liðið verið að spila vel á undirbúningstímabilinu.

Sjá einnig:
Viðtal við Bjarna Jóhannsson frá febrúar
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.