Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 06. maí 2022 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Stuðningsmenn Real fengu ekki að fara aftur inn
Mynd: EPA

Real Madrid skóp magnaðan endurkomusigur í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudagskvöldið.


Real var tveimur mörkum undir í einvíginu gegn stórliði Manchester City þegar uppbótartíminn fór af stað. Það voru þó ekki allir búnir að gefa upp vonina því Rodrygo Goes tók sig til og skoraði tvennu með stuttu millibili til að fara með leikinn í framlengingu.

Margir stuðningsmenn Real voru á leið út af leikvanginum þegar Rodrygo skoraði og reyndu þeir að snúa aftur til sæta sinna en fengu það ekki, sama hvað þeir reyndu.

Hér fyrir neðan má sjá rúmlega tveggja mínútna langt myndband sem nær að fanga virkilega tilfinningaþrungna stund á Santiago Bernabeu, þar sem tugþúsundir stuðningsmanna sungu 'Si se puede' eða 'Já það er hægt' á meðan nokkrir svartsýnir stuðningsmenn misstu af restinni af leiknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner