Fotbolti.net
10.09.26 - 20:34
Brynjar Ingi Erluson

Samþykkir ekki uppsögn þjálfarans

Samþykkir ekki uppsögn þjálfarans
Canon

Mynd: EPA

Aziz Yildirim, forseti tyrkneska stórliðsins Fenerbahce, hefur hafnað uppsögn Ismail Kartal, þjálfara liðsins.
Annar þjálfari segir af sér nokkrum mínútum eftir leik - „Mun aldrei snúa aftur“
TENGT EFNI

Annar þjálfari segir af sér nokkrum mínútum eftir leik - „Mun aldrei snúa aftur“

Kartal sagði starfi sínu lausu eftir 1-1 jafnteflið gegn Roma í Meistaradeildinni í kvöld og kvaðst aldrei ætla að snúa aftur. Hann vildi greiða leiðina fyrir næsta þjálfara á meðan samband hans við félagið væri enn gott, en þetta sagði hann á blaðamannafundi áður en hann yfirgaf leikvanginn.

Yildirim, sem var kjörinn forseti félagsins í annað sinn í sumar, sagði hins vegar eftir leikinn að ekki kæmi til greina að samþykkja uppsögnina.

„Ismail Kartal mun halda áfram störfum þar til ég yfirgef félagið,“ sagði Yildirim.

Það er mikil dramatík í tyrkneska boltanum og tilfinningarnar leyna sér ekki, en næstu dagar leiða í ljós hvort Kartal verði áfram.

Trabzonspor hafnaði einnig uppsögn Fatih Tekke eftir að liðinu mistókst að komast í Evrópudeildina í síðasta mánuði en varð að lokum við ósk hans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.