Fotbolti.net
10.09.26 - 23:25
Brynjar Ingi Erluson

Fimmtán ára leikmaður Man Utd skoraði þrennu og setti met

JJ Gabriel er einn efnilegasti leikmaður Englands

JJ Gabriel er einn efnilegasti leikmaður Englands

Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

Hinn fimmtán ára gamli JJ Gabriel setti met með unglingaliði Manchester United sem vann Sabah, 5-0, í Meistaradeild unglingaliða í dag.
Gabriel er talinn eitt mesta efni Englendinga og fékk smjörþefinn af aðalliðsfótbolta í sumar þegar hann kom við sögu í æfingaleik gegn Atlético Madríd.

Hann lék sinn fyrsta leik í Meistaradeild unglingaliða í dag og gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu. Þar með varð hann yngsti leikmaður United til að skora þrennu í keppninni, aðeins 15 ára og 339 daga gamall.

Haldi hann áfram á sömu braut gæti verið stutt í að stuðningsmenn United sjái hann í leikmannahópi aðalliðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.