11.09.26 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Skelfur á beinunum yfir því að mæta sínu gamla félagi - „Þeir geta látið þig líta illa út“

Fabregas er ekki spenntur að mæta Barcelona

Mynd: EPA

Cesc Fabregas, þjálfari Como á Ítalíu, gat fagnað fyrsta sigri liðsins í fyrsta leik þess í Meistaradeild Evrópu í gær, en hann er að fara á taugum yfir því að spá í næsta leik.
Como vann glæsilegan 4-1 sigur á Leipzig og fagnaði þar með sínum fyrsta sigri í Meistaradeildinni.
Næst bíður Barcelona, uppeldisfélag Fabregas, og er hann ekki beinlínis spenntur fyrir því að mæta Spánarmeisturunum.
„Barcelona fyllir mig skelfingu! Þeir eru ótrúlega ógnvekjandi, maður, og finna alltaf lausnir.“
„Þeir geta látið þig líta illa út því þeir finna lausnir í öllum aðstæðum.“
„Það skiptir ekki máli hver kemur inn í liðið, gæðin eru alltaf þau sömu,“ sagði Fabregas.
Leikurinn fer fram á Camp Nou, heimavelli Börsunga, eftir rúman mánuð.