Fotbolti.net
11.09.26 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Grealish gæti byrjað gegn Tottenham

Jack Grealish.

Jack Grealish.

Canon

Mynd: EPA

David Moyes, stjóri Everton, segir mögulegt að Jack Grealish byrji leikinn gegn Tottenham í síðdegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

„Jack þarf líklega meira á leikjunum að halda en æfingum eins og staðan er," segir Moyes.

Grealish er kominn aftur á láni til Everton frá Manchester City og kom inn af bekknum í jafntelinu gegn Manchester City í síðustu umferð.

Everton hefur byrjað tímabilið ágætlega og er með fimm stig eftir einn sigur og tvö jafntefli. Eins og fjallað hefur verið um er leikmannahópurinn ansi þunnskipaður eftir misheppnuð gluggalok hjá félaginu.
England um helgina - Erkifjendur mætast í Manchester
TENGT EFNI

England um helgina - Erkifjendur mætast í Manchester

Everton fékk Christian Nörgaard frá Arsenal og segir Moyes að danski landsliðsmaðurinn verði orðinn leikfær í október, eftir landsleikjagluggann.

Moyes segir að Everton sé að skoða möguleika á að fá félagslausa leikmenn til að koma með innspýtingu í hópinn.
Grealish gæti byrjað gegn Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.