Fotbolti.net
11.09.26 - 09:30
Kári Snorrason

Álitsgjafar spá í bikarúrslitin - Steindi Jr. hlær að leikslokum

Flautað verður til leiks á slaginu 19:00.

Flautað verður til leiks á slaginu 19:00.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Breiðablik og Afturelding eigast við í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í kvöld.

Ívar Orri dómari flautar til leiks á slaginu 19:00 og mun þar koma í ljós hvort liðanna fylgir Víkingi, KR og Fram í Evrópukeppni næsta sumar.

Af því tilefni hafði Fótbolti.net samband við fimm álitsgjafa - fjóra stuðningsmenn og einn óháðann sérfræðing til þess að spá í spilin.
Svanþór Einarsson - Heiðursgestur Aftureldingar
Afturelding 2-1 Breiðablik

Afturelding kemst yfir snemma í fyrri hálfleik eftir þrumuskalla frá Axel Óskari. Um miðbik seinni hálfleiks skorar Sævar Atli með fallegu slæsi í fjærhornið, líkt og hann gerir reglulega á golfvellinum.

Viktor Karl Einarsson, huggulegasti maður landsins, skorar sárabótamark fyrir Blikana í uppbótartíma. Steindi Jr. hlær að leikslokum.

Hilmar Jökull - Kópacabana
Afturelding 0-3 Breiðablik

Höggi setur eitt í grímuna á Aftureldingu á fyrsta korteri leiksins. Eftir að Maggi.net reynir að setja einhverja tryllta pressu á Blikana mína snemma í leiknum þá opnast í skyndisókn og Höggi setur boltann af D-boganum í hornið.

Kristófer bætir svo við marki rétt fyrir hálfleik með því að klippa fyrirgjöf frá Óla Val inn og Stjarnan þar með búin að borga til baka fyrir 2018.

Dolli, Thor, Sleggjan eða hvað menn vilja kalla hann stangar svo þriðja markið inn á plús mínus 70. mínútu og Bikarinn fer í Smárann og bomban fer grenjandi heim.

Agnar Freyr Gunnarsson - Vallarþulur Aftureldingar
Afturelding 3-1 Breiðablik

Í hörkuskemmtilegum kaflaskiptum leik þar sem bæði lið ná að sýna frábæra spilkafla. Staðan verður 1-1 á 79. mínútu.

Það verður síðan á síðustu 10 mínútum venjulegs leiktíma sem fjörið byrjar fyrir alvöru og Afturelding tekur völdin á vellinum og tryggir sér sigurinn.

Holtan með 2 og Óðinn 1, Höskuldur skorar mark Breiðabliks.

Arnar Laufdal Arnarsson - Samfélagsmiðlastjóri Breiaðbliks
Afturelding 1-3 Breiðablik

Þessir strákar þekkja stóru mómentin, síðast þegar þeir spiluðu á þessum velli rúlluðu þeir yfir margfalda Írlandsmeistara Shamrock Rovers.

Blikar komast í 2-0, Eldingin minnkar muninn í 2-1 og svo skorum við undir lokin 3-1 eftir skyndisókn. Sé þetta sirka svona fyrir mér.

Ragnar Bragi Sveinsson - Óháður
Afturelding 2-1 Breiðablik eftir framlengingu

Ég ætla að spá því að Afturelding vinni bikarinn í kvöld, þrátt fyrir að Breiðablik sé úr deildinni fyrir ofan. Leikurinn verður jafn og staðan verður 1–1 eftir 90 mínútur.

Höggi kemur Breiðablik yfir með marki sem verður ekki alveg samkvæmt kennslubókinni. Ég ætla að spá honum að skora með einhverju ótrúlegu – helst skoti sem fer í þrjá leikmenn, stöngina, bakvörð og svo inn. Hann mun sjálfur samt halda því fram að þetta hafi verið nákvæmlega eins og hann ætlaði sér.

Afturelding jafnar og leikurinn fer í framlengingu.

Þar reynist Axel Óskar hetja. Eftir hornspyrnu fær hann boltann á fjærstöng og skallar hann í netið. 2–1 fyrir Aftureldingu. Mosfellingar tryllast og einhver fer líklega strax að panta borð á Ásláki, hinni goðsagnakenndu knæpu Mosfellsbæjar.

Bjartur Bjarmi á svo eftir að eiga stórleik á miðjunni. Hann vinnur bolta, hleypur eins og maður sem veit ekki að framlenging sé 30 mínútur og heldur uppi miðjunni þegar aðrir eru farnir að leita að súrefni. Nafnið segir í raun allt sem segja þarf – Bjartur Bjarmi verður að skína.

Svo er það Baldvin, liðsstjóri Aftureldingar, sem mun að sjálfsögðu eiga sitt augnablik. Ég veit ekki nákvæmlega hvað það verður, en ég er nokkuð viss um að hann muni á einhverjum tímapunkti gera eitthvað sem verður endursagt á Ásláki næstu vikurnar. Baldvin verður einfaldlega að stela senunni.

Hjá Breiðabliki er Óli Skúli að stýra sínum fyrsta bikarúrslitaleik sem þjálfari. Þetta verður jafnframt fyrsta tap hans í bikarúrslitaleik – ef spáin mín gengur eftir.

Það er auðvitað ekki lítið því Óli Skúli vann bikarinn eftirminnilega með okkur Fylkismönnum árið 2001, þá sem hægri bakvörður, og svo aftur árið 2014 í Belgíu.

Og þar kemur einn mikilvægasti karakter kvöldsins inn í myndina: Kristján „Leður“ Valdimarsson, núverandi regluvörður Kviku banka, var viðstaddur bikarsigurinn í Belgíu. Ég verð því sérstaklega spenntur að sjá Leður í leðrinu í sjónvarpinu í kvöld. Það er mögulega meira spennandi en sjálfur leikurinn.

Kannski fáum við svo stórmynd af Leðri þegar Axel skorar og Óli Skúli áttar sig á að bikarævintýrið verður ekki þríleikur.

90 mínútur: 1–1.
Framlenging: Axel Óskar skorar eftir hornspyrnu.
Lokastaða: Afturelding 2–1 Breiðablik.

Höggi með sitt undarlega mark.
Bjartur Bjarmi skín á miðjunni.
Baldvin stelur senunni.
Óli Skúli tapar sínum fyrsta bikarúrslitaleik sem þjálfari.
Kristján „Leður“ mætir í leðrinu.
Og svo verður farið á Áslák.

Bikarinn fer heim í Mosó!
Svanþór Einarsson er heiðursgestur Mosfellinga í kvöld.

Svanþór Einarsson er heiðursgestur Mosfellinga í kvöld.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Jökullinn spáir öruggum sigri Blika.

Jökullinn spáir öruggum sigri Blika.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agnar Freyr hlúir að sóttvörnum.

Agnar Freyr hlúir að sóttvörnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Laufdal hress.

Arnar Laufdal hress.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ragnar Bragi spáir Mosfellingum sigri.

Ragnar Bragi spáir Mosfellingum sigri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Svo er það Baldvin, liðsstjóri Aftureldingar, sem mun að sjálfsögðu eiga sitt augnablik.“

„Svo er það Baldvin, liðsstjóri Aftureldingar, sem mun að sjálfsögðu eiga sitt augnablik.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján 'leður' Valdimarsson.

Kristján 'leður' Valdimarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Fara hlæjandi heim.

Fara hlæjandi heim.

Canon

Mynd: Hvíti Riddarinn

„Bikarinn fer í Smárann og bomban fer grenjandi heim.“

„Bikarinn fer í Smárann og bomban fer grenjandi heim.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Horfðu á upphitunarþátt Mjólkurbikarsins

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.