11.09.26 - 10:33
Elvar Geir Magnússon
Velti bíl sínum á leið á æfingu

Bílveltan við æfingasvæði Hull.

Mynd: X

Bílveltan við æfingasvæði Hull.

Mynd: X
Sorba Thomas, leikmaður Hull City, velti Land Rover bifreið sinni þegar hann var á leið á æfingu í morgun. Óhappið átti sér stað rétt við æfingasvæði Hull.
Hull hefur staðfest að hinn 27 ára gamli Thomas hafi verið í bílnum en segir hann hafa sloppið án nokkurra meiðsla.
Hull hefur staðfest að hinn 27 ára gamli Thomas hafi verið í bílnum en segir hann hafa sloppið án nokkurra meiðsla.

TENGT EFNI
Efnilegasti miðjumaður Grikklands og einn annar til Hull (Staðfest)
Mynd af bílnum á hvolfi fór á flug á samfélagsmiðlum en þar má sjá einstakling úr starfsliði Hull á vettvangi, talið er að um sé að ræða stjórann Sergej Jakirovic.
Thomas, sem er kantmaður, gekk í raðir Hull frá Stoke City í sumar fyrir 10 milljónir punda og hefur spilað tvo leiki fyrir félagið.
Hull á leik á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Thomas, sem er kantmaður, gekk í raðir Hull frá Stoke City í sumar fyrir 10 milljónir punda og hefur spilað tvo leiki fyrir félagið.
Hull á leik á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Sorba Thomas.

Mynd: Hull City
