11.09.26 - 11:21
Elvar Geir Magnússon
Tómas Bent: Yrði heiður að vera valinn í landsliðið
Einum leik frá þjóðarleikvangi Skotlands

Tómas Bent segist tilbúinn í aukna ábyrgð hjá Hearts.

Mynd: Hearts

Mynd: Hearts/Skjáskot

Tómas Bent Magnússon, miðjumaður Hearts, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í aðdraganda leiks liðsins gegn C-deildarliðinu Stenhousemuir í 8-liða úrslitum skoska deildabikarsins sem fram fer í kvöld.
Hearts er einum leik frá því að komast á Hampden, þjóðarleikvang Skotlands, en þar verður spilað í undanúrslitum keppninnar.
Tómas Bent segist tilbúinn í aukna ábyrgð hjá Hearts en það er talsvert um meiðsli á miðsvæðinu hjá liðinu og talað um að hann taki að sér stærra hlutverk í breyttum leikstíl liðsins undir stjórn Wouter Vrancken.

„Ég er spenntur fyrir því. Við erum beðnir um að gera öðruvísi hluti en á síðasta tímabili. Nýr stjóri kemur inn með öðruvísi leikstíl og sýn á fótboltann. Maður þarf að fylgja hans hugmyndafræði," segir Tómas Bent, sem er fyrrum leikmaður ÍBV og Vals.
„Þetta er mjög gott, bæði fyrir mig og ég held að ég tali fyrir marga af samherjum mínum. Að fara í öðruvísi leikstíl og auka í vopnabúrið er bara jákvætt."
Vonandi er ég í myndinni
Á fréttamannafundinum kom íslenska landsliðið til tals. Tómas, sem er 24 ára, lék aldrei fyrir yngri landslið Íslands og segist ekki vita hvort landsliðsþjálfararnir hafi fylgst með framþróun sinni hjá Hearts.
„Ég vona það, en ég veit það ekki. Vonandi er ég í myndinni hjá landsliðinu. Ef ég verð valinn er það stórkostlegt. Ég hef ekki verið í landsliðinu en það yrði mikill heiður."
Yrði stórt fyrir mig að vinna bikar
Eins og frægt er þá var Hearts nálægt því að verða skoskur meistari á síðasta tímabili, sem hefði orðið sögulegt afrek.
„Við vorum nálægt þessu á síðasta tímabili. Að fá bikar sem fyrst yrði gott fyrir félagið og stuðningsmennina. Við skuldum okkur sjálfum og stuðningsmönnum. Það yrði líka stórt fyrir mig persónulega að fá bikar undir beltið. En næsta skref er að vinna þennan leik og spila á Hampden," segir Tómas.

????? Tomas Magnusson meets the media ahead of tonight's Premier Sports Cup QF match at Stenhousemuir.
— Heart of Midlothian FC (@JamTarts) September 11, 2026
???? https://t.co/CcDqjUjlAe pic.twitter.com/FxSgMco6zt

Mynd: Hearts/Skjáskot