Fotbolti.net
11.09.26 - 11:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Brotið umtalaða í Njarðvík - „Laddi hefði átt að fá gult“

Þórhallur Ísak - Laddi.

Þórhallur Ísak - Laddi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Strax á 3. mínútu leiks Njarðvíkur og Þróttar í Lengjudeildarumspilinu kom upp stórt atvik þegar Þórhallur Ísak Guðmundsson, markvörður Þróttar sem oftast er kallaður Laddi, braut á Oumar Diouck, sóknarmanni Njarðvíkur, fyrir utan vítateig Þróttar. Ekkert var hins vegar dæmt og slapp Laddi án refsingar.

Njarðvíkingar voru virkilega ósáttir við þessa ákvörðun dómara leiksins en dómari leiksins var Gunnar Freyr Róbertsson og á þessari hlið vallarins var Bryngeir Valdimarsson aðstoðardómari. Njarðvíkingar vildu sjá rautt spjald fara á loft og fleiri hafa tekið undir þar.

Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ, er hins vegar á öðru máli.
Sjáðu atvikið: Stór mistök dómarans í Njarðvík
TENGT EFNI

Sjáðu atvikið: Stór mistök dómarans í Njarðvík

„Aukaspyrna og gult spjald," segir Þóroddur. „Þeir eiga báðir möguleika á að leika boltanum, Njarðvíkingurinn nær snertingu á boltann og markmaðurinn klárlega brýtur á honum. Snertingin er hins þung og boltinn stefnir langt út á kant þannig að okkar niðurstaða er að þarna hefði verið rétt að dæma aukaspyrnu og áminna markmanninn. Við getum ekki horft á þetta þannig að verið sé að ræna augljósu marktækifæri vegna þess að boltinn fer langt út á kant."

Það breytir því ekki að þetta sé markmaðurinn sem brýtur?

„Nei, af því snertingin er svo þung á boltann að hann fer svo langt frá honum. Það er því ekki augljóst að hann sé næstur á boltann og sé í upplögðu marktækifæri. Þess vegna er niðurstaðan okkar aukaspyrna og gult spjald, en ekki rautt spjald eins og umræðan er. Þetta er ekki alvarlega grófur leikur hjá markmanninum sem verðskuldar rautt."

Finnst þér of mikið gert úr atvikinu?

„Nei, alls ekki. Ég skil alveg umræðuna og held þetta sé aðallega af því það er markmaður sem brýtur. Við ræddum það okkar á milli, en á endanum þarf að vera augljóst marktækifæri svo leikmanni sé vísað af velli. Ef Njarðvíkingurinn hefði snert boltann rétt framhjá honum og það verið augljóst að hann hefði getað leikið honum mjög fljótlega aftur, þá hefði þetta alltaf verið rautt," segir Þóroddur.

Seinni leikur liðanna í undanúrslitaeinvíginu fer fram í Laugardal á sunnudag og leiðir Þróttur með einu marki eftir leikinn í Njarðvík.

Brotið á Oumar Diouck.

Brotið á Oumar Diouck.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Gunnar Freyr var með flautuna.

Gunnar Freyr var með flautuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.