Bomban og Patrekur Orri fyrir úrslitin: Ólafur Ingi missir starfið eftir leik

Gömul mynd af Gunnari betur þekktur sem Bomban

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Patrekur er fyrrum leikmaður Aftureldingar en er nú hluti af þjálfarateymi kvennaliðsins

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gömul mynd af Gunnari betur þekktur sem Bomban

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Gunnar Hilmar Kristinsson betur þekktur sem Bomban og Patrekur Orri Guðjónsson voru mættir í Minigarðinn til að hita upp fyrir úrslit Mjólkurbikarsins. Gunnar er hlaðvarpsmaður en Patrekur er fyrrum leikmaður Aftureldingar og er nú í þjálfarateymi kvennaliðsins.
„Stemningin er helvíti góð, ég er með Patrek Orra sem er 'slæser' í Mosó. Þessi gaur sér um allt í Mosó, hann er gaurinn. Ég held að Afturelding vinni 2-1 eftir framlengingu," sagði Gunnar en þeir voru í svakalegu stuði fyrir leik.
„Ég segi líka 2-1, mér líst mjög vel á þetta. Við þekkjum Laugardalsvöll vel, þetta verður 1-1 svo tökum við þá í framlenginu. Það er helvíti gott," sagði Patrekur.
Afturelding er nýbúið að tryggja sér upp í Bestu deildina en Breiðablik er klárlega sigurstranglegra liðið í þessum leik. Þessir stuðningsmenn láta það hins vegar lítið á sig fá og eru kokhraustir fyrir leiknum.
„Erum við hræddir við lítið fólk?," segir Gunnar. „Þetta er geggjað móment að fá að spila við Blikana úr þessu. Þeir eru búnir að vera á slæmum stað, þannig við bara ættum að fá hörku leik, risa lið. Við erum búnir að taka Stjörnuna út, búnir að taka Fylki í risa leik, þannig ég hef engar áhyggjur af þessu," sagði Patrekur.
Strákarnir sögðu ýmislegt fleira en sjón er sögu ríkari þegar kemur að þessu viðtali og því mæli ég með að fólk horfir á þetta viðtal frekar en les.

Patrekur er fyrrum leikmaður Aftureldingar en er nú hluti af þjálfarateymi kvennaliðsins

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
