10.09.26 - 19:51
Brynjar Ingi Erluson
Annar þjálfari segir af sér nokkrum mínútum eftir leik - „Mun aldrei snúa aftur“

Kartal er hættur

Mynd: EPA

Kartal er hættur

Mynd: EPA
Ismail Kartal sagði starfi sínu lausu sem þjálfari Fenerbahce á blaðamannafundi eftir 1-1 jafnteflið gegn Roma í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

TENGT EFNI
Þjálfari Salah sagði upp störfum eftir tapið
Fenerbahce hefur farið brösuglega af stað á tímabilinu með tvo sigra og tvö töp, en félagið er eitt það stærsta í Tyrklandi og jafnan er búist við að það berjist um titilinn.
Jafnteflið gegn Roma reyndist síðasta stráið hjá Kartal, þrátt fyrir að liðið hefði fengið mörg góð færi til að vinna leikinn, og sagði hann starfi sínu lausu á blaðamannafundinum eftir leik.
„Ég ætla að segja starfi mínu lausu á meðan leiðin er enn greið og ég geri það með því skilyrði að ég snúi aldrei aftur,“ sagði Kartal.
Þetta virðist vera að verða vikulegur viðburður í Tyrklandi, en Fatih Tekke hætti hjá Trabzonspor nokkrum mínútum eftir að liðinu mistókst að komast í Evrópudeildina. Félagið hafnaði uppsögninni fyrst en féllst á hana að lokum.