Fotbolti.net
11.09.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

100% klár í slaginn um Manchesterborg

Nico O'Reilly er búinn að hrista af sér meiðsli.

Nico O'Reilly er búinn að hrista af sér meiðsli.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United tekur á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Enzo Maresca, stjóri City, fór yfir stöðu mála á leikmannahópnum á fréttamannafundi í dag.

Hann greindi frá því að Jeremy Doku verði ekki með í leiknum en Nico O'Reilly er búinn að hrista af sér meiðsli og er klár í slaginn.

Maresca segir að Doku, sem hefur ekki spilað vegna kálfameiðsla síðan í leiknum um Samfélagsskjöldinn, þurfi nokkra daga í viðbót og Manchester-slagurinn komi of snemma fyrir hann.
England um helgina - Erkifjendur mætast í Manchester
TENGT EFNI

England um helgina - Erkifjendur mætast í Manchester

Að sögn Maresca er O'Reilly hinsvegar 100% klár fyrir leikinn.

City hefur unnið alla þrjá deildarleiki sína á tímabilinu og vann einnig sigur gegn Porto í Meistaradeildinni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.