Fotbolti.net
06.05.26 - 23:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkasta lið 3. umferðar - Tvö úr horni og alltaf í liðinu

Andrea Mist skoraði tvö mörk beint úr horni.

Andrea Mist skoraði tvö mörk beint úr horni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þriðja umferð Bestu deildarinnar lauk í kvöld með fjórum leikjum. Breiðablik situr á toppnum með fullt hús, rétt eins og nýliðar ÍBV sem fóru á Hlíðarenda í kvöld og tóku þar sigur.

Jón Óli Daníelsson er sterkasti þjálfari umferðarinnar og eru Embla Harðardóttir og Olga Sevcova úr ÍBV í sterkasta liði umferðarinnar.
Sterkasta lið 2. umferðar - Verður þetta ár nýliðanna?
TENGT EFNI

Sterkasta lið 2. umferðar - Verður þetta ár nýliðanna?



Agla María Albertsdóttir hefur byrjað mótið frábærlega og hefur verið í sterkasta liði umferðarinnar í fyrstu þremur umferðunum. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, liðsfélagi hennar, hefur ekki verið mikið síðri en hún var maður leiksins í 4-2 sigri Breiðabliks á Víkingi í kvöld. Þær tvær verða algjörir lykilmenn fyrir Breiðablik í sumar.

FH vann sinn fyrsta sigur í sumar er þær lögðu Grindavík/Njarðvík í kvöld, 2-1. Genevieve Crenshaw, markvörður gestana, var maður leiksins og landsliðskonan Ída Marín Hermannsdóttir var frábær í liði FH.

Þróttur vann nokkuð þægilegan 0-3 sigur á Fram og þar voru Sæunn Björnsdóttir, Jelena Tinna Kujundzic og Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir voru öflugar í liði Þróttar í leiknum.

Þá gerðu Þór/KA og Stjarnan 2-2 jafntefli á Akureyri. Andrea Mist Pálsdóttir skoraði tvö mörk beint úr horni og Amalía Árnadóttir var lykilmaður í endurkomu Þórs/KA.

Næsta umferð, fjórða umferðin, hefst næsta sunnudag og lýkur á mánudaginn.
Agla María hefur farið frábærlega af stað í sumar og er alltaf í sterkasta liði umferðarinnar.

Agla María hefur farið frábærlega af stað í sumar og er alltaf í sterkasta liði umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Óli er þjálfari umferðarinnar.

Jón Óli er þjálfari umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Geta Vestmannaeyingar leyft sér að dreyma?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.